Stutt útgáfa úr ferilskrá:
Eiríkur Elís útskrifaðist úr lagadeild Háskóla Íslands 2001 sem cand. jur. Þá er hann með LL.M gráðu frá King‘s College London í alþjóðlegum fjármögnunarrétti (Law of International Finance). Hann starfaði sem lögfræðingur hjá óbyggðanefnd 2001 til 2002. Var löglærður fulltrúi hjá Lögmönnum Skólavörðustíg 6b 2002-2004. Var eigandi lögfræðiskrifstofunnar Nestor frá 2004 og LEX (eftir sameiningu við Nestor) til 2011.
Eiríkur Elís er dósent og deildarforseti við lagadeild Háskólans í Reykjavík þar sem hann hefur starfað frá 2012. Hans sérsvið eru alþjóðlegur einkamálaréttur, réttarfar, kröfuréttur og opinber innkaup. Eiríkur Elís hefur verið gistifræðimaður við Leuven háskólann í Belgíu.
Eiríkur Elís er með leyfi til að flytja mál fyrir Hæstarétti Íslands og er meðlimur í Lögmannafélagi Íslands. Hann hefur flutt yfir hundrað mál fyrir íslenskum dómstólum. Þá hefur hann verið dómkvaddur matsmaður af íslenskum dómstólum og fenginn til að gefa sérfræðiálit fyrir dómstólum í Englandi og Svíþjóð.
Ennfremur hefur hann sinnt ritstjórnarstörfum; var framkvæmdarstjóri Bókaútgáfunnar Codex frá 1999 til 2001 og sat í stjórn útgáfunnar frá 2001-2007, þar af sem stjórnarformaður frá 2005-2007, og hefur átt sæti í ritstjórn Tímarits Lögréttu frá 2014. Hann situr í stjórn Gerðardóms Viðskiptaráðs Íslands. Þá hefur hann gegnt stjórnarstörfum fyrir Stoðir hf. (frá 2008-2013, sem stjórnarformaður), Lex lögmannsstofu (2005-2007), Tryggingarmiðstöðina hf. (frá 2011-2013 (varamaður 2011)) og í stjórn Salmon Tails ehf. (frá 2011 sem stjórnarformaður).
Eiríkur Elís hefur hefur haldið fjölmarga fyrirlestra og birt greinar í fagtímaritum en um þær vísast til meðfylgjandi kafla. |