Starfsnám í verkfræði I

NámsgreinT-706-INT1
Önn20241
Einingar6
SkyldaNei

Ár1. ár
ÖnnVorönn/Spring 2024
Stig námsgreinar3. Grunnnám, sérhæft námskeið
Tegund námskeiðsValnámskeið
UndanfararEngir undanfarar.
SkipulagKennt í allt að 12 vikur skv. sérstakri stundaskrá.
Kennari
Sóley Davíðsdóttir
Lýsing
Stig námskeiðs:                   3. Grunnnám, sérhæft námskeið / 4. Framhaldsnám, inngangsnámskeið.
Tegund námskeiðs:            Valnámskeið í öllum námsbrautum. Nemandi sem stundar starfsnám getur í mesta lagi  verið skráður í 30 ECTS á viðkomandi önn. Námskeiðið er ekki opið skiptinemum.
Nauðsynlegir undanfarar: Tvö námsár í verkfræði. Þátttakendur eru valdir úr hópi umsækjenda, m.a. er tekið tillit til námsframvindu og einkunna.Starfsnám I er valnámskeið á lokaári BSc náms eða fyrra ári MSc náms og er skilyrðislaus undanfari fyrir Starfsnám II. Nemandi vinnur að afmörkuðu verkefni undir leiðsögn umsjónarmanns hjá fyrirtæki/stofnun og eftirliti umsjónarkennara hjá HR. Miða skal við að vinnuframlag nemanda sé að lágmarki 120 vinnustundir. Þessu til viðbótar kemur undirbúningur, vinna við gerð lokaskýrslu og kynningu hennar.Starfsnám I er valnámskeið á lokaári BSc náms eða fyrra ári MSc náms og er skilyrðislaus undanfari fyrir Starfsnám II. Nemandi vinnur að afmörkuðu verkefni undir leiðsögn umsjónarmanns hjá fyrirtæki/stofnun og eftirliti umsjónarkennara hjá HR. Miða skal við að vinnuframlag nemanda sé að lágmarki 120 vinnustundir. Þessu til viðbótar kemur undirbúningur, vinna við gerð lokaskýrslu og kynningu hennar.  
 
Nemendur á lokaári BSc náms geta tekið Starfsnám II í beinu framhaldi af Starfsnámi I á 12-vikna meginkennslutímabili annarinnar, eða tekið einungis Starfsnám I.  
 
Nemendum á fyrra ári MSc náms býðst ekki að taka einungis Starfsnám I. Ef þeir velja starfsnám þá er það samtals 12 ECTS, þ.e. í beinu framhaldi af Starfsnámi I kemur Starfsnám II, sem má taka hvort heldur á 12-vikna eða á 3vikna kennslutímabilinu. Ef nemandi tekur bæði Starfsnám I og II á 12-vikna kennslutímabilinu, þá dreifast samanlagðar vinnustundir beggja námskeiða á allt að 12 vikur. Starfsnámið ber að skipuleggja þannig að vinnutíminn skarist ekki við kennslustundir í öðrum námskeiðum. Sjá nánar Leiðbeiningar um starfsnám í verkfræði.  
 
Verkefnið skal vera skilgreint og afmarkað í samráði við umsjónarmann hjá fyrirtæki/stofnun og umsjónarkennara hjá HR. Að öllu jöfnu er um að ræða hagnýtt verkefni sem byggir á námsefni undangenginna anna og rúmast á 120 vinnustundum. Við upphaf starfsnáms skal liggja fyrir lýsing á verkefninu sem umsjónaraðilar hafa samþykkt.  
 
Áhersla er lögð á skipuleg, sjálfstæð og tæknileg vinnubrögð. Nemandinn skal í upphafi skilgreina verkefnið, þ.e. hvert sé markmið og afrakstur. Meðan á verkefninu stendur skal nemandinn halda dagbók þannig að hægt sé að fylgjast með framvindu verkefnisins. Í lok námstíma skal nemandinn skrifa skýrslu um verkefnið sem er kynnt og varin munnlega. 
 
Heimilt, í samráði við umsjónarkennara, að ákveða að nemandi í BSc námi vinni í Starfsnámi I að mörgum smærri verkefnum hjá fyrirtæki/stofnun í stað þess að vinna að einu afmörkuðu verkefni allan tímann, með það að meginmarkmiði að nemandinn kynnist fjölbreyttri starfsemi viðkomandi vinnustaðar. Þetta er ekki heimilt ef um er að ræða nemanda í MSc námi. Fyrir nemendur í MSc námi er starfsnám einungis í boði sem 12 ECTS, þ.e. nemandinn tekur bæði Starfsnám I og Starfsnám II.Lesefni: Samkvæmt ábendingum umsjónarmanns.
Námsmarkmið
Lærdómsviðmið eiga að endurspegla það sem nemandinn lærir og þá reynslu sem hann hlýtur meðan á starfsnámi stendur. Áherslur, sértæk lærdómsviðmið og kröfur um afrakstur verða skilgreind af umsjónaraðilum HR og viðkomandi fyrirtækis hverju sinni fyrir hvert einstakt verkefni, með eftirfarandi markmið í huga.
  • að efla tengsl nemenda tækni- og verkfræðideildar HR við atvinnulífið.
  • að auka innsýn og skilning nemenda á viðfangsefnum þess fagsviðs sem þau stunda nám á.
  • að auka skilning nemenda á verkferlum og skipulagningu verkefna hjá viðkomandi fyrirtæki/stofnun.
  • að nemendur geti skipulagt og útfært faglega vinnu út frá fyrirfram gefnum forsendum og kröfum.
  • að styrkja samskiptahæfni nemenda (innri og ytri samskipti í fyrirtæki)
  • að nemendur hljóti reynslu af því að vinna að úrlausn raunhæfra viðfangsefna á vettvangi, undir leiðsögn leiðbeinenda úr atvinnulífinu.
  • að undirbúa nemendur undir starf eftir námslok.
  • að opna nemendum leið inn á vinnumarkað.
Námsmat
Einkunn Staðið/Fall. Lagt verður mat á frammistöðu nemanda á vinnustaðnum ásamt dagbók, lokaskýrsla og kynningu á verkefninu. Við matið skal taka mið af því hvort nemandi hafi sýnt fram á getu til uppfylla lærdómsviðmiðin sem umsjónaraðilar skilgreina í upphafi námskeiðs.
Lesefni
Ekkert skráð lesefni.
Kennsluaðferðir
Kennt í allt að 12 vikur skv. sérstakri stundaskrá. Nemandi vinnur að afmörkuðu verkefni undir leiðsögn umsjónarmanns hjá fyrirtæki/stofnun og eftirliti umsjónarkennara hjá HR. Nemandinn skal í upphafi skilgreina verkefnið, þ.e. hvert sé markmið og lokaafurð. Vinnutími nemanda við verkefnið skal að lágmarki vera 120 klst, því til viðbótar kemur undirbúningur, svo og vinna við gerð lokaskýrslu og kynningu verkefnisins.
TungumálÍslenska