Reikningshald, afleiður og aðrir fjármálagerningar

NámsgreinV-871-AFLE
Önn20241
Einingar7,5
SkyldaNei

Ár1. ár
ÖnnVorönn/Spring 2024
Stig námsgreinar4. Framhaldsnám, grunnnámskeið
Tegund námskeiðsValnámskeið
UndanfararEngir undanfarar.
SkipulagFjórir fyrirlestrar í viku
Kennari
Unnar Friðrik Pálsson
Lýsing
Í námskeiðinu verður gerð grein flokkun, mati og færslu fjáreigna og fjárskulda.  Einnig verður fjallað um sértæk mál svo afleiðusamninga um eigin hlutabréf, áhættuvarnarskil og upplýsingagjöf vegna fjármálagerninga
Námsmarkmið
Að námskeiði loknu er stefnt að því að nemendur hafi: -Öðlast mikla og djúpa þekkingu á flokkun, færslu, mati og afskráningarreglum fjármálagerninga samkvæmt alþjóðlega reikningsskilastaðlinum IFRS 9.- Þekki mun á eigin fé og fjárskuldum (IAS 32) þegar kemur að flóknum gerningum svo sem afleiðum um eigin hlutabréf.-Hafi fengið góða innsýn í á hvern hátt afleiður eru notaðar í rekstri fyrirtækja, sérstaklega í áhættuvarnarskyni og þekki vel til áhættuvarnarreikningsskila og reglna þeim tengdum.- Þekki kröfur IAS 32 og IFRS 9 um upplýsingagjöf í ársreikningum félaga sem beita stöðlunum.- Þekki reglur um ákvörðun gangvirðis og stigveldisskiptingu gangvirðismat (IFRS 13).-Þekki reglur ársreikningalaga um fjármálagerninga og mun á þeim reglum og reglum alþjóðlegra reikningsskilastaðla.
-Geta beitt þekkingu á fjármálagerningum við flokkun, mat og færslu ólíkra tegunda slíkra gerninga.- Bera kennsl á álitamál sem kunna að koma upp við flokkun og mat sem og við mat á afskráningu fjáreigna og fjárskulda. Í námskeiðinu verður gerð grein flokkun, mati og færslu fjáreigna og fjárskulda.  Einnig verður fjallað um sértæk mál svo afleiðusamninga um eigin hlutabréf, áhættuvarnarskil og upplýsingagjöf vegna fjármálagerninga
Námsmat
Skilaverkefni eru 4 talsins og eru öll hópverkefni.  Hvert þeirra vegur 10% og þau því samtals 40%. Mætingareinkunn vegur 5% en lokapróf 45%.
Lesefni
Ekkert skráð lesefni.
Kennsluaðferðir
Fyrirlestrar sem samanstanda af einkum af útskýringum og dæmum á reglum viðeigandi staðla (einkum IAS 32, IFRS 9, IFRS 7 og IFRS 13). Gert er ráð fyrir virkri þátttöku nemenda (m.a. með  mætingarskyldu) og gert ráð fyrir að nemendur undirbúi sig vel fyrir tíma.
TungumálÍslenska