Andri Árnason er fæddur 1957 og lauk lagaprófi frá Háskóla Íslands 1982. Héraðsdómslögmaður 1984, málflutningsréttindi fyrir Hæstarétti 1993. Starfar sem lögmaður í Reykjavík. Stundakennari í almennri lögfræði við Lagadeild Háskóla Íslands frá 1986-2002, en hefur að auki annast stundakennslu í Viðskipta- og hagfræðideild HÍ og á ýmsum námskeiðum á vegum Endurmenntunarstofnunar HÍ, m.a. í réttindanámi verðbréfamiðlara. Formaður kærunefndar jafnréttismála frá árinu 2000, formaður mannanafnanefndar frá 2001, í áfrýjunarnefnd samkeppnismála frá 1994-1995, í stjórn LMFÍ frá 1993-1996, formaður laganefndar LMFÍ frá 1994-2000 og formaður stjórnar Gerðardóms Verslunarráðs Íslands frá árinu 2005. Auk þess situr Andri í ýmsum opinberum nefndum og ráðum. Postgraduate-próf í samkeppnisrétti EB, King´s College, London (Diploma); sumarnámskeið í Evrópurétti á vegum sama 2001. Hefur að auki sótt ýmis námskeið og ráðstefnur, einkum á sviði samkeppnis- og fjarskiptaréttar.
|